hitamál!!!!!!!

26. ágúst 2006 klukkan 04:56

Já, ég get nú ekki orða bundist núna. Var að lesa umræður á barnaland.is um strákinn sem var settur inn í fangelsi í Brasilíu fyrir að reyna að smygla dópi. Vá, það sýnir sig nú bara hversu stutt í þroskaferlinu sumt fólk er komið í þessu lífi. Hvar er samkenndin? Erum við virkilega svona grimm að við óskum náunganum alls hins illa? Er virkilega ekki hægt að gefa fólki annað tækifæri eftir að það misstígur sig? Erum við hætt að geta sett okkur í spor annarra?

Ekki misskilja mig, ég er ekki að verja hans glæp á einn eða annan hátt. Að sjálfsögðu á maðurinn að taka út sinn dóm eins og hver annar glæpamaður. En að það sé verið að brjóta svona hrikalega á mannréttindum Íslendings varðar mig og þig og alla hina samlanda okkar. Mér finnst hræðileg tilhugsun að ef ég misstíg mig í lífinu,barnið mitt eða einhver nákominn mér að það sé ekki einu sinn hægt að treysta á ráðamenn þjóðarinnar til að hjálpa manni heim, í sitt eigið land þar sem mar hefur alist upp og borgað sína skatta allt sitt líf. Í þessum málum sér maður hversu spilltu og gráðugu landi við búum á. Okkur er alveg sama um 11 ára Íslending sem er settur í fangelsi í Bandaríkjunum með harðsvírustu glæpamönnunum fyrir óvitaskap. En ef við erum að tala um Bobby Fisher, sem var frægur skákmaður á árum áður og við gætum fengið fullt af athygli fyrir að frelsa hann og veita honum hæli hér þá er málið allt annað!!!!!!

Við eigum að standa saman!!!!!!! Íslendingur er alltaf Íslendingur sama hversu hart hann misstígur sig.

Ég veit hvað það er að vera aðstandandi fanga. Það er ekki auðvelt. Maður upplifir margar tilfinningar s.s. reiði, skömm, sorg, söknuð, pirring, sjálfsvorkun, doða, missi og flr og flr. Þetta er eins og aðilinn deyi, nema maður getur heimsótt hann aðra hvora helgi. Vá, börnin mín eru orðin svo stór, 5 og 7 ára. Minn bróðir er búinn að vera inni allan tíman og missa algerlega af lífi okkar hinna og við af hans. Hann á allt í einu fullt af frændsystkinum sem hann varla þekkir, ættingjar hans og vinir fluttir eitthvað allt annað en það bjó þegar hann fór inn. Hann missir af fermingum og brúðkaupum og öðrum stórviðburðum sem gerast hjá okkur. Fólk þarf aðeins að hugsa lengra þegar það talar um að það verði að lengja dómana. Það er meira en að segja það að vera frelsissviptur í mörg ár. Lífið bara sett á hold í nokkur ár.

Það sem ég er að fara fram á við ykkur kæru lesendur er að skoða málið betur áður en þið dæmið. Setjið ykkur í spor annarra. Sú persóna sem hefur rétt á að kasta fyrsta steininum er ekki til!

Þið getið lesið grein um málið á visir.is og einnig er alveg mjög fróðlegt að lesa skoðanir og fáfræði fólks inn á barnaland.is.

Guðrún Snæbjört Þóroddsdóttir

hún fór út í sveit að elta gamla geit..........

23. júlí 2006 klukkan 06:20
jess, ég áorkaði að fara í eina dagsferð út á land í sumar!!!!!! Skelltum okkur á ættarmót, Hafsteins megin. Ferðinni var heitið að Varmalandi í Borgarfirði. Alveg rosalega fínt og flott. Ákváðum bara rétt að renna þar sem við vorum bæði að vinna í morgun og svo eigum við ekki einu sinni svefnpoka, hvað þá tjald til að leggja upp í eitthvað meira. En audda ætlum við að bæta úr því næsta sumar( hehe sagði þetta reyndar líka síðasta sumar og þarsíðasta og þarþarsíðasta.................) Hittum fullt af flottu fólki og fengum mikið gott að borða. Grísirnir nutu sín í tætlur. Á svona dögum sér mar hvað það er mikilvægt fyrir börn að fá að vera frjáls út í náttúrunni. Alveg frábært barasta.Búin að setja inn fréttir á hina síðuna mína. Á morgun ætla ég bara að slaka á og njóta síðasta frídagsins í bili.
Guðrún Snæbjört Þóroddsdóttir

hellúúúúúúúú!

21. júlí 2006 klukkan 05:58
Hæ.
Tölvuskrattinn minn er bilaður þannig að ég get lítið bloggað þessa dagana. Gríp hvert tækifærið þegar Bubbi stendur upp frá sinni tölvu og fæ að kíkja. Hef reyndar lítið að segja þessa dagana, bara allt yndislegt þegar veðrið er svona agalega gott og að vera akkúrat í fríi. Annars ferlega fínt að hafa Bubba bró í heimsókn. Hann setur í uppþvottavélina, tekur úr þvottavélinni, brýtur saman þvottinn, þrýfur bílinn minn og passar meiraaðsegja. Veit ekki alveg hvernig ég á að hafa þetta þegar hann fer út aftur. Verð bara að fá mér ráðskonu eða itthvað. Eða kannski að reyna að minnka alla þessa hlutu sem mar er að stússast í alla daga, gerast bara heimakær kettlingur.
Veðrið algjört æði! Ætla að reyna að drullast eitthvað um helgina með skvísurnar mínar, þó það væri ekki nema bara dagsrúntur eitthvað út á land.

Svona í lokin langar mig til að benda ykkur á áhugaverðar síður sem ég skoða oft.

www.pabbar.is
www.ljosmodir.is
www.stjuptengsl.is
www.doktor.is

mjög fróðlegt allt saman.
Guðrún Snæbjört Þóroddsdóttir

merkilegur dagur.

16. júlí 2006 klukkan 00:51
1. Sigga vinkona sendi mér sms í morgun, hún átti dreng kl 8.15. Innilega til hamingju Sigga, Bjarni og Alexandra með litla prinsinn.
2.Arnar Bald og Baldvin Bald (bræður) eiga báðir afmæli í dag. Til hamingju með daginn sætu bræður.
3. Inga systir mætti í ræktina í dag. Til hamingju með árangurinn Inga mín.
4.Ég eldaði bestu hvítlaukssúpu í heimi og lasagna í kveld og því var að sjálfsögðu skolað niður með hvítu.
5.ég kenndi 2 tíma í röð í morgun og það var svoooooooooo gott.
6.Rafvirkinn kom og kláraði ljósin á heimilinu og nú get ég slökkt þau eða notað dimmerinn með fjarstýringu. Alveg merkilegt.
7.Ég er að fara með Ingu vinkonu í heimsókn til Elínar í kveld.
8. þetta leiðindarskap sem ég er búin að vera í undanfarið er alveg að fara og góða skapið er farið að láta sjá sig.
Guðrún Snæbjört Þóroddsdóttir

ÉG ÞOLI EKKI.........................

15. júlí 2006 klukkan 03:22
þegar ég er búin að skrifa alveg vel heppnað blogg og svo vistar mar og það hverfur bara eins og Geirfinnur hér forðum. Er ekki í stuði til að skrifa annann pistil strax, verð að láta renna af mér reiðina fyrst. En ég er í startholunum með DV-fréttirnar en ég skrifa það inná hina síðuna að þessu sinni.
Guðrún Snæbjört Þóroddsdóttir

já og eitt enn.

12. júlí 2006 klukkan 23:01
http://www.b2.is/?sida=tengill&id=99482

Gott fyrir alla að vita hvar þeir standa. Reiknið nú...........
Ég er í kjörþyngd.
Guðrún Snæbjört Þóroddsdóttir

svona fyrst við erum að tala um fitu!

12. júlí 2006 klukkan 22:55
ImageTOPP TÍU : vísbendingar um að þú sért að verða of feit/ur

1.    Þér finnst óæginlegt að hreyfa þig

2.    Þér er neitað um afgreiðslu út í sjoppu

3.    Þú tekur át fram yfir kynlíf
4.    Kærastan/inn gefur þér kort í líkamsrækt

5.    Þú ert alltaf með plömmer og í magabol

6.    Þú þarft að versla í high and mighty

7.    Þú ferð á veitingastað og biður um hlaðborð í forrétt

8.    Þú léttist um 20 kíló í hvert sinn sem þú ferð að kúka

9.    Þú ert beðin/nn um að leika jólasveininn

10.    Þig langar að commenta á þessa grein , en þú getur það ekki því puttarnir eru svo feitir og þú ýtir alltaf á marga takka í einu.
Guðrún Snæbjört Þóroddsdóttir

hvað er að gerast fyrir íslensk börn?

11. júlí 2006 klukkan 05:12


Ég skellti mér í sund um daginn og fór að spá í íslensk börn nú til dags. c.a. 2 af hverjum 3 börnum eiga við offituvandamál að stríða( engar áræðanlegar tölur, aðeins mitt mat þarna í lauginni), við erum þá að tala um mikið feit börn, ekki bara þessi sem eru með smá hvolpaspik á sér.

Ég fór að spá og reyna að finna ástæðuna fyrir þessu öllu saman, af hverju eru svona mörg börn feit í dag? Af hverju var okkar kynslóð ekki svona?

1. Mömmurnar í gamla daga áttu ískápinn og enginn vogaði sér að vaða í hann án þess að biðja um leyfi.
2.Mömmur voru heimavinnandi í gamla daga og voru með mat á ákveðnum tímum, td. morgunmat,hádegismat,kaffitíma,kvöldmat og jafnvel kvöldkaffi.
3.Í gamla daga var ekkert nart á milli mála.
4.í gamla daga voru börn úti að leika sér allan daginn. Rétt komu inn til að fá sér að borða og ruku svo strax út aftur í leiki.
5. Í gamla daga var ekki svona mikið stress á öllum. Allir gátu borðað saman í rólegheitunum.
6.Börn fengu ekki svona mikið nammi í gamla daga, það var bara spari, á jólunum og ef einhver kom heim frá útlöndum.
7. Börn byrjuðu að vinna ung, td við að selja blöð og passa börn.
8. Takmarkað sjónvarpsgláp.
og svo lengi má telja..................
þegar ég er að tala um gamla daga þá er ég að meina þegar ég var ung, það er ekki lengra síðan.

Af hverju eru börn feit í dag?
1. sífellt nartandi í sætindi.
2. óreglulegt mataræði.
3.óreglulegur matartími.
4. algert hreifingarleysi, hangið heima í tölvunni og yfir sjónvarpinu, rétt staðið upp til að rölta út í sjoppu til að kaupa bland í poka.
5.lífsgæðakapphlaupið er að drepa alla, börnin eru stressuð.
6. börn nenna ekki að vinna né leika sér.
7.lítil sem engin fjölskyldusamskipti vegna útivinnandi foreldra.
8. börn eru nánast sjálfala.

Ferlega sorglegt. Hvernig á þessi kynslóð að getað tekið við landinu? þau nenna örugglega ekki að rækta það, né vinna til að halda batteríinu gangandi. En hvað er ég svo sem að röfla, ég verð löngu komin undir græna torfu. Vona bara að það verði búið að bæta kjör aldraðra þegar ég þarf á því að halda.


Guðrún Snæbjört Þóroddsdóttir

doldið sein með fréttir vikunnar!

09. júlí 2006 klukkan 10:15
Vegna ólifnaðar, fylleríis og veðurblíðunnar frestaðist bloggið mitt um helgar DV. Biðst innilegar afsökunar. Já, Bubbi kóngur gaf spúsu sinni nýjan BMW að andvirði 5 milljóna. Vissi að ég hefði átt að næla í kauða þegar tækifærið barst! Enn fleiri pólitíkusar keyra fullir. Bæjarfulltrúi í Hafnarfirði er grunaður um ölvunarakstur. Um er að ræða Guðmund Rúnar Árnason formann fjölskylduráðs Hafnarfjarðarbæjar. Algerlega bænum til skammar sem slíkum. Maggi Eiríks á að semja þjóðhátíðarlagið í ár. Lagið er í vinnslu og á að vera auðsungið fyrir alla lagvísa sem laglausa. Heyrst hefur að Sigga Dísa vinkona ætli að vera fjarri góðu gamni á þjóðhátíðinni í ár. Slíkt hefur ekki gerst sl. 10 ár. Einnig hvíslaði lítill fugl því að mér að hún væri búin að vera edrú í 16 vikur núna samfleytt. Já, vegir ástarinnar eru órannsakanlegir. Nú er fólk hætt að senda inn minningargreinar um látna ástvini í gamla góða mogganum. Þær eru bara settar inn á bloggsíður landans. Dæmi eru um að minningar eru settar inn á bloggið nokkrum klst eftir lát einstaklinga. Hjörtur Magni prestur í Fríkirkjunni talar um að aðgát skal höfð í nærveru sálar, því oft er ekki búið að ná í alla nánustu ættingja og því ekki gott að þeir séu að frétta af andláti með því að lesa blogg viðkomandi. Lítið hefur heyrst í Silvíu Nótt eftir júróvísjónkeppnina. En allavega er hún núna að gefa út plötu. Spennandi að heyra hana. Tveir litháar voru teknir í Norrænu í gær með 12 kíló af spítti. Ég hef ákveðið að kalla málið Stóra spíttmálið! Hverslags dóm skildu þeir nú fá? Geta þeir ekki logið sig út úr þessu svipað og Kio Briggs gerði forðum? Allur flugfloti Bandaríkjahers á Íslandi verður farinn af landi brott þann 15. sept. Því verða engar loftvarnir hjá okkur frá miðjum ágúst. Og hvað gera bændur þá? Nýjar rannsóknir benda til þess að konur geti notað innsæi sitt til þess að velja sér maka. Konur geta lesið úr andlitum karlmanna hvað þeir vilja. Þurfa bara að horfa nógu lengi. Einar Bárða er úti í London með Nælonstúlkunum í von um heimsfrægð vegna útgáfu fyrstu smáskífu stelpnanna. Lokaþáttur Lost er á mánudaginn. og 2 seríur í viðbót í bígerð. Ekkert annað að frétta, allir á Írskum dögum á Akranesi. Minns fékk nokkra gesti og skellti sér svo smástund á Players og það var alveg glatað! Man ekki eftir jafn miklu samansafni af ......konum,...... köllum og bara einhvern vegin engin stemning þar á ferðinni. Samt kósí að skella sér aðeins út á lífið. Er alltaf að sjá það betur og betur að þetta glamúrlíf á ekkert við mig! Er að bíða eftir pitsunni sem ég pantaði mér og er svo að fara að lúlla með kaglinum.
Guðrún Snæbjört Þóroddsdóttir

Thelma Líf orðin 5 ára skvísa.

03. júlí 2006 klukkan 01:47
Já tíminn er svo sannarlega fljótur að líða. Ekki langt síðan ég var með risa kúlu að bíða eftir drengnum mínum. Var nebbla alveg viss um að hún væri strákur.Glottandi. Það var nebbla búið að segja mér að barnið væri orðið 20 merkur samkvæmt sónar og samt ein vika eftir, og ég hugsaði með mér að þetta hlyti að vera strákur því engin stelpa gæti verið svona stór. En allavega fékk ég þessa stóru og fínu stelpu, 18 merkur og 56.5 cm. Eftir nokkra klukkutíma var mér tjáð að hjartað í henni væri ekki eðlilegt. Beið í von og ótta að ekkert alvarlegt væri þar á ferð. Hún reyndist með 5 mm. gat á milli hjartahólfanna. Sem betur fer greri það fljótt og vel, en stundum þurfa börn að fara út í aðgerð vegna þess að gatið heldur áfram að stækka með þeim. En ekki í Thelmu tilfelli, enda jaxl eins og mamma sínGlottandi Alla vega þá er Thelma mín eitt það hraustasta barn sem til er. Reyndar báðar systurnar. Get talið það á annarri hendinni hversu oft þær hafa fengið hita. Ég er rosalega heppin með þær. Er oft búin að spá í essu. Ég er td. ein sú kærulausasta, þær fara sjaldan út með húfur,vettlinga og þ.h. Fóru ekki daglega í bað, ég spáði lítið hvað fór ofan í þær, fullt af nammi og gosi, og þær eru svakalega hraustar þrátt fyrir þetta. En svo þekki ég fólk sem er á fullu að reyna að hafa allt fullkomið, alltaf með börnin kappklædd, bað á hverjum degi, halda börnum sínum heima ef þau fá hor í nös, ekki drekka kúamjólk heldur saujamjólk, gefur börnum sínum aðeins lífrænt ræktað og svo framvegis, og þessir grísir alltaf veikir! Ég er á því að því kærulausari sem mar er því meira styrki mar ónæmiskerfið. Ég er nú samt ekki að tala um að vanrækja börnin sín. Ég treysti bara mínum börnum til að láta vita ef þeim verður kalt eða heitt osfv.
Guðrún Snæbjört Þóroddsdóttir

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

Hver ertu?

Leikur dagsins